Búist við stýrivaxtahækkun í dag

Fastlega er búist við því að stýrivextir Seðlabanka Íslands verði hækkaði í dag, en ákvörðun liggur fyrir klukkan 09:00. Greiningardeildir bankanna eru allar sammála um þetta efni og spá hálfs prósentustigs hækkun.

Í sjálfu sér þarf ekki að vera spámannlega vaxinn til að meta stöðuna með þessum hætti. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur gefið það sterklega í skyn að hækka þurfi stýrivexti bankans nú í haust til að mæta hærri verðbólgu af völdum nýgerðra kjarasamninga.

Jafnvel er talið að hækkun stýrivaxta verði í þrepum, eða sem nemi hálfu prósentustigi nú og svo tveimur eða þremur álíka hækkunum þegar líður á haustið, en útlit er fyrir að verðbólga teygi sig yfir á fjórða prósentið í upphafi veturs.