Umsagnarferli um breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög nr 66/2003 er lokið. Framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi gagnrýnir harðlega að frumvarpið gangi erinda hagsmuna Búseta í Reykjavík.
Mat Búseta á Norðurlandi er að ráðherra stefni í að þrengja mjög að starfsramma húsnæðissamvinufélaga á landsbyggðinni og útiloki raunverulega starfsemi þeirra, þvert á það sem Eygló hefur haldið fram og markmið í tillögum verkefnisstjónar ganga út á, segir Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi.
„Tillögur Eyglóar virðast bókstaflega kokkaðar upp eftir hugmyndum Búseta í Reykjavík, sem er sannarlega eina húsnæðsisamvinnufélagið sem starfar á markaðs- og þenslusvæði og getur það án hjálpar frá starfsramma og löggjöf,“ segir Benedikt í samtali við Hringbraut.
Þetta er meðal annars rökstutt þannig í umsögn Búseta á Norðurlandi vegna frumvarpsins að betra hefði verið að setja almennan ramma fremur en „einstrengingsleg og íþyngjandi fyrirmæli“ eins og það er orðað.
„Það vekur því óneitanlega vonbrigði og furðu ef (sér)áherslur Búseta í Reykjavík varðandi markaðsvæðingu allra viðskipta með búseturétt verða, að tillögu húsnæðisráðherra, festar í lög. Slík breyting gengur gegn almennum viðmiðunum samvinnurekstrar um jafnræði félagsmanna óháð efnahag og reynsla aðila af vanda íbúðafélaga - t.d. og EIR og Búmanna - ætti að verða mönnum til varnaðar,“ segir í umsögn Búseta á Norðurlandi sem sent var Alþingi til umsagnar.
„Að mati Búseta á Norðurlandi er mikilvægt að öll ákvæði er varða viðskipti með búseturétti og uppsögn búsetusamninga verði framvegis fest í samþykktum einstakra félaga - en undir engum kringumstæðum skapaður sá \"freistnivandi\" með þrengdum lögum að einstakir búseturéttareigendur selji frá sér búseturétt þegar uppgangur er og leysi út úr félagi sínu (um leið og þeir yfirgefa það!) - allan ávinning af hækkuðu íbúðaverði - meðan félagið verður áfram skilið eftir með skuldsetningu og alla áhættu af lækkandi verði og áföllum í rekstri.“
Til stóð í gær að frumvarp Eyglóar Harðardóttur yrði lagt fram á þingi en ekki náðist samkomulag um það.