Búmenn komnir í greiðslustöðvun

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti í dag húsnæðissamvinnufélaginu Búmönnum heimild til greiðslustöðvunar til 5. júní í sumar svo freista megi þess að ná nýrri skipan á fjármál félagsins, sem varð illa úti í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.


Búmenn eiga nú 541 íbúð í 13 sveitarfélögum og eru langflestar þeirra eða um 93 prósent í notkun. Stærstur hluti íbúðanna eða um 90 prósent þeirra er á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrannasveitarfélögum þess. Í tilkynningu frá Búmönnum í dag segir að rétt sé að undirstrika að greiðslustöðvunin muni ekki hafa áhrif á réttindi eða skyldur búseturétthafa Búmanna, s.s. rétt þeirra til áframhaldandi búsetu í fasteignum sínum.


Í tilkynningu segir: "Við hrun fjármálakerfisins haustið 2008 var fjárhagur Búmanna í föstum skorðum en á næstu misserum eftir hrunið jukust vanskil búseturétthafa. Til viðbótar við vanskil jukust umtalsvert uppsagnir á búsetusamningum, þar sem félagið var með innlausnarskyldu. Saman leiddi þetta til vaxandi fjárhagsörðuleika Búmanna sem stjórn og starfsmenn hafa leitast við að leysa úr, meðal annars í samstarfi við Íbúðalánasjóð, aðallánveitanda félagsins."


Búmenn hafa leitað aðstoðar lögmannsstofunnar LEX og endurskoðunarstofunnar KPMG vegna þessa til að greina lagalega og fjárhagslega stöðu félagsins og kynna möguleg úrræði til úrbóta. Að fenginni greiningu og ráðgjöf þessara aðila varð það niðurstaða stjórnar Búmanna, að því er segir í tilkynningunni að rétt væri, áður en lengra yrði haldið, að fá heimild til greiðslustöðvunar í þeim tilgangi að tryggja að unnt yrði að undirbúa og ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins, í formlegu og lögbundnu ferli þar sem jafnræði kröfuhafa væri tryggt þar á meðal til upplýsinga og þátttöku.