Gestir Ritstjóranna á Hringbraut í gærkvöld, þau Logi Bergmann Eiðsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir eru ekki alveg á sömu blaðsíðunni í umræðunni um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði - og gott ef það hvín ekki í tálknum í myndveri stöðvarinnar.
Logi er á því að Ísland tapi samkeppnisstöðu sinni í norðanverðu Atlantshafi ef lágmarkslaun hækka um of, því atvinnulífið hér á landi sé að keppa við 70 þúsund króna lágmarkslaun úti í Evrópu, raunar akkúrat þau laun sem verkalýðsforystan hér á landi vill greiða fyrir vinnu við innréttingagerð í Eistlandi fyrir leiguhúsnæðið sem hún er að reisa hér á landi; tvískinningur, spyr Logi - og svarar sjálfur að svo sé vissulega; það þýði ekki að berjast fyrir almennilegum launum heima en velja svo láglaunasvæðin erlendis fyrir eigin hús.
Ólína er hins vegar á því að herská verkalýðsforysta eigi erindi, það sé fjarri öllu lagi að ríkisforstjórar og bankastjórar á vegum hins opinbera hækki við sig laun upp úr öllu valdi án afleiðinga, en svo sé því haldið fram að ef lægst launaða fólkið fái hógværar launahækkanir þá fari stöðugleikinn fyrir róða.
Meðal annarra umræðuefna Ritstjóranna eru þungunarrofsfrumvarpið sem Ólína geldur varhug við, stækkun Miðflokksins sem Logi telur ekki skipta máli, innflutnignur á hráu kjöti sem hvorugt hræðist, Eddan og staða RÚV á sjónvarpsmarkaði, en þar eru Logi og Ólína algerlega ósammála.
Ritstjórarnir eru partur fréttaþáttarins 21 á þriðjudagskvöldum. Umræðurnar í heild sinni er að finna hér: