Bullandi góðæri eða hvað? mikil aukning á sölu kampavíns

Frá 1. janúar til 22. júlí á þessu ári jókst áfengissala hér á landi um þrjú prósent miðað við árið í fyrra. 12,2 milljónir lítra af áfengi hafa selst en á sama tíma í fyrra var magnið 11,8 milljónir lítra. Líklegt má telja að veðurblíðan í sumar eigi hér hlut að máli en einnig er rétt að hafa í huga að ferðamönnum hefur fækkað. Athyglisvert er að sala á freyðivínum og kampavíni hefur aukist um 30 prósent á milli ára.

Þetta kemur fram í Fréttblaðinu í dag. Haft er eftir Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR, að aukningin hafi verið nokkuð jöfn á árinu en hafi aðeins aukist í sumar. Engin skrá er þó haldin yfir hvort salan er meiri þegar veður er gott.

Sala á hvítvíni hefur aukist um 6,5 prósent á milli ára en sala á rauðvíni hefur dregist saman um 1,5 prósent.

„Stundum er því haldið fram að sala hvítvíns endurspegli gott veður og það er kannski raunin í ár, þótt það séu eingöngu getgátur.“

Er haft eftir Sigrúnu sem sagði að birgðastaðan væri almennt ágæt en þó gæti sú staða komið upp að einstaka tegundir seljist upp.

Sala á lagerbjór hefur aukist um 2,3 prósent en sala annars bjórs, til dæmis IPA og craft-bjórs, um 9,9 prósent. Sala á blönduðum drykkjum hefur aukist um 24,6 prósent og á sterkum vínum nemur aukningin 1,1 prósenti. Sala ávaxtavína hefur dregist saman um 12,5 prósent.