Búlgarska þjóðin gerir grín að Ás­dísi Rán

Nafn Ás­dísar Ránar Gunnars­dóttur hefur verið á vörum margra í Búlgaríu eftir að hún kom fram í frétta­þætti á ríkismiðli Búlgaríu 7/8. Í þættinum ræddi Ás­dís við Krum Savov og Mayu Savova um líf sitt þar í landi og muninn á Ís­lendingum og Búlgurum.

Þátturinn virðist hafa vakið mikla kátínu meðal búlgörsku þjóðarinnar sem gera ó­spart grín af fram­komu Ás­dísar á sam­fé­lags­miðlum.

Ísdrottning Búlgaríu

Ás­dís flutti til Sofiu í febrúar á þessu ári og starfar sem einka­þjálfari og lífs­stíls­ráð­gjafi. Sam­kvæmt þáttar­stjórnandanum Savov er hún þekkt í Búlgaríu sem ís­drottningin.

Að­spurð hvort Ís­lenskir eða Búlgarskir karl­menn væru meira kyn­æsandi sagði Ás­dís menn landanna tveggja eiga það sam­eigin­legt að minna á víkinga. Það væri þó eitt­hvað sem að­skildi þessa tvo hópa.

„Ég er alin upp í landi þar sem allir eru ljósir á hörund en hérna úti eru allir dökkir sem er sér­stakt fyrir mig. Ég er líka sér­stök hérna úti af því ég er ljós í yfir­litum.“

Ekki vel að sér um ástandið

Ein­hverjum á­horf­endum fannst Ás­dís ekki vita nóg um land þjóð á meðan aðrir sökuðu hana um heimsku. Í byrjun við­talsins viður­kenndi Ás­dís að hún væri ekki vel að sér um á­standið í Búlgaríu þar sem hún hafi að­eins búið í landinu í nokkra mánuði. Fjölda­mót­mæli hafa átt sér stað síðustu daga í höfuð­borginni vegna ó­á­nægju með ríkis­stjórnina og þá sér­stak­lega for­sætis­ráð­herrann, Boy­ko Boris­sov.

Ás­dís sagði það vera mikil­vægt fyrir al­menning að mót­mæla til að koma vilja um breytingar á fram­færi. Sjálfri fannst henni það ekki vera hennar hlut­verk að taka þátt í mót­mælunum í Sofíu.