Næturfrost verður víða í innsveitum um norðaustanvert landið næstu sólarhringa, enda búist við þónokkru norðanáhlaupi með kuldastreng yfir landið allt fram yfir helgi.
Mildast verður um vestanvert landið þótt vart megi búast við meiri hita þar en 12 til 14 gráðum. Eins stafa tölurnar verða hins vegar viðvarandi næstu daga um norðan- og norðaustanvert landið og allt niður eftir austfjörðum. Hætt er við að úrkoman, sem verður nokkuð fyrirferðarmikil næstu daga falli í formi snævar ói fjöllum og til heiða fram yfir helgi, enda getur hitinn farið hæglega niður fyrir núllið um nætur þótt hann haldi sig kannski í þremur til fimm gráðum yfir daginn á þessum köldustu svæðum landsins næstu daga.
Þetta veðurlag getur kallað á hálku á heiðum og fjallvegum, en Vegagerðin minnir annars á á hálendisvegir hafa opnast óvenju seint í ár, einkum á sunnanverðu landinu og enn eru margir þeirra lokaðir. Mikilvægt sé að árétta að vegirnir eru ekki aðeins ófærir almennri umferð heldur sé í langflestum tilvikum beinlínis um akstursbann að ræða vegna hættu á skemmdum, bæði á vegum og ekki síður náttúru.