Búist við ófærð á fyrsta sumardegi

Norðanbálið sem, búist er við á morgun, sumardaginn fyrsta, flengir slíkum éljagangi yfir norðanvert landið að allt eins má búast við ófærð á heiðum og fjallvegum á Tröllaskaga og vestur með Norðurlandinu. Hiti verður um frostmark; kafþykkt nyrðra en léttskýjað syðra í nokkrum hráslaga.  


Á þennan veg kveður einn sögulegasti vetur síðari ára í samræmi við eðli sitt og innræti. Veðurmetin sem hann setti eru nánast óteljandi, en aldrei hafa fleiri siglingar flutimngaskipa raskast en á þessum vetri, aldrei hafa fleiri ferðir millilandaflugvéla farið úr skorðum en á þessum vetri, aldrei hefur heiðum á borð við hellisheiði syðri verið lokað jafn oft og á þessum vetri og svona mætti telja áfram.


Af 70 fyrstu dögum þessa árs var veðurhæð undir 20 m/s aðeins 14 sinnum. Með öðrum orðum var stormur yfir landinu í 56 daga af þessum hálfa þriðja mánuði í byrjun ársins.  


Frost verður 0 til 8 stig fram í næstu viku.