Hörður Harðarson formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram til áframhaldandi formennsku félagsins. Þessa ákvörðun tók hann eftir að hann frétti að fyrrverandi varaformaður félagsins, Smári Sigurðsson hefði afráðið að bjóða sig fram gegn honum.
Hörður bíður sig því ekki fram en í stað hans býður Margrét Laxdal, varaformaður SL, sig fram til formanns. Samkvæmt heimildum Hringbrautar má vænta átaka á landsfundi SL sem haldinn verður á Ísafirði í lok maí. Hörður Harðarson fráfarandi formaður skilur eftir sig gott bú en í hans stjórnartíð tókst að snúa við slæmri fjárhagsstöðu í góða og má þar helst þakka góðu markaðsstarfi sem hófst með tilkomu Neyðarkalls-sölunnar og sjónvarpssöfnunar á RÚV. Einnig var rekstrarkostnaður lækkaður verulega með lokun Gufuskála en það vakti raunar reiði hjá mörgum innanbúðarmönnum en formaðurinn taldi ekki undan því komist.
Nýr formaður mun því taka við góðu búi.