Búist við 25% fjölgun ferðamanna í ár

Erlendu ferðafólki sem lagði leið sína til Íslands fjölgaði um 31% fyrstu fimm mánuði þessa árs samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Fjölgun ferðamanna yfir vetrarmánuðina er nú meiri en þekkst hefur  nokkru sinni.

Að sögn sérfræðinga innan ferðageirans má búasat við því að fjölgun erlendra ferðamanna á landinu verði ekki jafn mikil yfir hásumarið og verið hefur frá byrjun janúar til loka maí á þessu ári, en hún verði þó örugglega yfir 15%. Þá er útlit fyrir að næsta haust verði mun betur bókað af erlendu ferðafólki en verið hefur á undanliðnum árum - og er þess að vænta að öllu samanlögðu að erlendu ferðafólki fjölgi um 25% á öllu þessu ári samnborið við síðasta ár.

Þessi fjölgun þýðir að ein milljón erlendra ferðamanna og 250 þúsund betur heimsæki Ísland á þessu ári en til samanburðar má nefna að árið 2010 sótti hálf milljón útlendinga Ísland heim. 

Þessi fjölgun hefur haft það í för með sér að tekjur samfélagsins af ferðaþjónustu eru nú orðnar meiri en af sjávarútvegi, eða sem nemur 350 milljörðum króna á meðan sjórinn skilar 300 milljörðum. Þá er ferðaþjónustan orðin mannaflafrekasti atvinnuvegurinn sem stundaður er hér á landi.