Tyggjóklessubaninn Guðjón Óskarsson ætti að vera flestum Reykvíkingum kunnugur. Hann gert hefur garðinn frægan fyrir að hreinsa upp tyggjóklessur af götum höfuðborgarinnar undanfarið og hreinsaði í dag upp eitt hundrað þúsundustu tyggjóklessuna. Guðjón er þó hvergi nærri hættur og hefur sett sér nýtt og enn háleitara markmið.
„Næsta markmið er 346.824 af því að þá verða Íslendingar, á því mómenti, 346.824. Hvernig líst ykkur á það?“ sagði Guðjón að vonum sáttur í viðtali við RÚV.
Guðjón hefur ekki síður vakið eftirtekt fyrir einstaka jákvæðni og glaðlyndi. Hann hóf að hreinsa tyggjóklessur upp á eigin spýtur sumarið 2020 eftir að hann missti vinnuna í heimsfaraldrinum en var síðar ráðinn formlega til starfa af Reykjavíkurborg. Þá veitti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri honum nafnbótina Reykvíkingur ársins síðasta sumar.
Guðjón hefur skráð hverja tyggjóklessu skýrt og skilmerkilega í gegnum teljara sem hann ber utan um hálsinn og í dag náði hann markmiði sínu; tyggjóklessu númer hundrað þúsund.
„Nú er hægt að klappa. Þetta var ánægjuleg stund,“ sagði Guðjón þegar áfanganum var náð.