Bernskuár rithöfundarins Mikaels Torfasonar voru mörkuð alvarlegri geðhvarfaasýki, kvíðaköstum og ranghugmyndum Huldu Fríðu Berndsen, mömmu hans og feiknlegum alkóhólisma og ævintýramennsku föður hans, Torfa Geirmundssonar, hárskera.
Inn í allan þann görótta kokteil blandaðist heimsendaspá Votta Jehóva sem fjölskyldan tilheyrði allt þar til pabbinn var rekinn úr trúfélaginu vegna hórdóms. Mamma reyndi svo aftur að heyra til þessum sérstæða trúarhópi, svona aðallega til að minnka ístöðuleysið í lífinu, en gafst svo endanlega upp á samkvæminu at arna, rétt eins og Lilja systir Mikaels, nokkru seinna, enda kom hún þá út úr skápnum sem lesbía sem er höfuðsynd á meðal Vottanna.
Systkinagalleríið er engu lagi líkt, því við bætast bræður í neyslu annars vegar og dæmdur hermaður úr Íraksstríðinu sem fékk átta ára dóm.
Öllu þessu lýsir Mikael með svo áheyrilegum hætti að unun er á að hlýða - og horfa, en efniviðurinn er líka kominn út á splunkunýrri bók, Syndafallinu, sem er sjálfstætt framhald bókarinnar Týnd í paradís sem kom útt fyrir tveimur árum og fjallaði um hans furðulegu fjölskyldu.
Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvvöld.