Í viðtali Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, við Ásmund Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra í sjónvarpsþættinum 21 sem frumsýndur var á miðvikudagskvöld ræðir ráðherra um stigvaxandi fíknivanda sem íslenskt samfélag glímir við og skort á meðferðarúrræðum til að takast á við þann vanda.
Kjarninn fjallar um þetta.
Um 600 manns bíða eftir því að komast á sjúkrahúsið Vog.
Í viðtalinu er haft eftir Ásmundi Einari um bráðavanda ungra einstaklinga sem glíma við fíknivanda:
„Við erum, vil ég meina, búin að leysa hann með þeim aðgerðum sem við erum að ráðast í á Stuðlum á síðustu vikum þannig að það á ekki að þurfa að vísa börnum frá sem koma inn í kerfið\".