Hiti er kominn yfir tuttugu gráður í Reykjavík, og er dagurinn því sá hlýjasti í sumar. Nýjustu mælingar sýndu 20,3 stig samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, og hefur metið í borginni í sumar því verið slegið.
Glampandi sól og blíða er í Nauthólsvík þessa stundina og hefur fjöldi fólks lagt leið sína þangað í dag, að því er mbl.ir segir í frétt sinni um hlýindin Gestir ystrandarinnar segja góða stemningu vera á svæðinu: \"Það er fámennt en góðmennt núna en það er að aukast af fólki,“ segir Steingerður Sonja Þórisdóttir, við vefinn: \"Það er smá vindur en hann er hlýr svo þetta er bara eins og á alvöru sólarströnd.“
\"Sumarið er ekki alveg búið ennþá,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofunni við mbl.is: \"Það verður hlýtt fram á kvöld og svo verður áfram hlýtt á morgun.“
Hann segir nokkuð milt verða áfram sunnanlands, en á Norður- og Austurlandi muni hvöss og blaut norðanátt hins vegar ganga yfir. „Það fer að rigna fyrir austan á morgun sem færist svo norður. Þá kólnar heldur á þeim slóðum,“ segir hann: \"En það léttir vonandi aftur til um helgina.“