Búið að lýsa yfir hættustigi á suðurlandi

Hættu­stigi hefur verið lýst yfir á Suður­landi vegna óveðurs. Viðbúnaður neyðarþjónustu hefur verið efldur.

Mbl.is hefur eftir stjórnanda hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra:  „Veðrið er mjög slæmt núna í kring­um Vest­manna­eyj­ar - þar er veðrið skollið á af full­um þunga.“

Ekki hafa enn borist fréttir af miklum skaða eða meiðslum hjá fólki vegna austan fárviðris sem gengur nú yfir en fréttamiðlar munu fylgjast vel með og upplýsa almenning um gang mála.