Í fyrrradag, fimmtudaginn 6.september var legudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) opnuð á ný eftir svo gagngerar endurbætur að segja má að húsnæðið hafi verið endurbyggt.
Þetta kemur fram í pistli Páls Matthíassonar forstjóra spítalans sem birtur var í gær á vef LSH. Endurbótum á dagdeild verður svo lokið á haustmánuðum. Páll skrifar: „Það er léttir að þessum framkvæmdum er að ljúka. Ástand húsnæðisins var orðið svo slæmt að heilsuspillandi var fyrir sjúklinga og starfsfólk og bregðast varð við. Í þá vegferð var farið fyrir rúmu ári og afraksturinn er sá að þessi ómissandi hlekkur í nútíma heilbrigðisþjónustu, barna- og unglingageðdeildin er að fá umgjörð sem sæmir“.