Rekstrarhagnaður Berkshire Hathaway, fjárfestingafélags Warrens Buffetts, tvöfaldaðist á þriðja fjórðungi ársins og var umtalsvert meiri en greinendur höfðu búist við. Ástæðuna má aðallega rekja til lægri skattgreiðslna og færri tjóna í tryggingarekstri félagsins.
Félagið birti fjórðungsuppgjör sitt í gær og upplýsti um leið að það hefði keypt eigin bréf fyrir 928 milljónir dala, jafnvirði 112 milljarða króna, á þriðja fjórðungi ársins.
Rekstrarhagnaður Berkshire Hathaway nam 6,9 milljörðum dala á þriðja fjórðungi samanborið við 3,4 milljarða dala á sama tíma í fyrra. Bandarískir greinendur höfðu spáð hagnaði upp á 6,1 milljarð dala á tímabilinu, að því er segir í frétt Reuters.
Afkoma eigna- og skaðatrygginga í rekstri tryggingafélaga Berkshire var betri á tímabilinu en búist hafði verið við en félögin urðu fyrir þungu fjárhagslegu höggi í fyrra vegna þriggja fellibylja í Bandaríkjunum og jarðskjálftar í Mexíkó.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/buffett-tvoefaldar-rekstrarhagnainn