„Við fengum þá kosningu sem við áttum skilið, með því að bjóða fram klofinn flokk í kosningunum.“ Þetta sagði Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, í hádegisútvarpi Þjóðbrautar, fyrr í dag.
Í þeim tilraunum sem gerðar hafa verið, til að mynda ríkisstjórn að undanförnu, hefur Framsóknarflokkurinn hvergi komið við sögu. Fólk í öðrum flokkum virðist lítt spennt fyrir Framsókn.
„Við fengum þá kosningu sem við áttum skilið, með því að bjóða fram klofinn flokk í kosningunum.“ Ég ætla að taka þátt í, að heilum hug, að sameina flokkinn að baki formanninum. Þannig að næst munum við bjóða fram sameinaðan Framsóknarflokk. Skilaboðin sem vorum með til kjósenda í kosningunum í haust, voru þessi; við erum Framsóknarmenn og við treystum ekki hver öðrum, en við viljum að þú treystir okkur, ágæti kjósandi. Það gengur ekki upp. Við verðum að horfast í augu við okkur sjálf og flykkja okkur að baki formanninum. Málefnaskráin er jafn góð og gild og hún hefur alltaf verið og meðal okkar er ekki málefnaágreiningur.“
Þorsteinn sagðist styðja þann sem er formaður flokksins á hverjum tíma. „Það er engin launung að ég er stuðningsmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og hef verið til langs tíma. Á einhverjum tímapunkti verða menn að leggja ágreining til hliðar.“
Með réttu eða röngu upplifir Sigmundur Davíð að Sigurður Ingi hafi svikið sig.
„Eflaust gerir hann það.“
Getur verið að Framsóknarflokkurinn þurfi að velja nýjan formann, hvorki Sigmund Davíð né Sigurð Inga?
„Það er ekki útilokað. Ég þekki þá báða og ber virðingu fyrir þeim. Mín skoðun er sú að við þurfum mann, einsog Sigmund Davíð í stjórnmálin. Mann með þessar hugmyndir, sem urðu að veruleika á síðasta kjörtímabili, mann sem er svona frjór, við þurfum þannig mann í pólitík. Mér virðist að sumu leyti hann vera jafn umdeildur og Jónas frá Hriflu var. Nú öllum þeim árum sem liðin eru frá því að Jónas féll frá og var í sinni baráttu getum við verið sammála um að hann hafi verið maður sem gekk vasklega til verka. Fékk hugmyndir sem hann hrinti í framkvæmd. Það var kannski gott að við fögnuðum hundrað ára afmæli Framsóknarflokksins í Þjóðleikhúsinu, því sennilega ýtti enginn maður meira á að það hús yrði byggt en einmitt Jónas. Kannski er sagan að endurtaka sig þegar nú kemur fram maður sem hefur aðrar skoðanir, aðrar hugmyndir og aðra sýn en aðrir, þá er djöflast í honum alveg endalaust.“
Þorsteinn sagði vissulega sumu stæði ógn af Sigmundi Davíð. „Þeir sem töpuðu fyrir honum í kosningunum 2013.“
-sme