Hörð skeyti hafa gengið milli Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra Sögu og Bubba Morthens tónlistarmanns síðustu daga. Í færslu á facebook í dag bendir Bubbi á að Útvarp Saga sé nú með könnun í gangi þar sem spurt sé hvort fólk treysti Bubba Morthens. Bubbi svarar þessu skeyti með því að leggja til að í næstu spurningakönnun Sögu verði spurt hvort Arnþrúður Karlsdóttir sé fyllibytta. Hann lætur þó broskarl fylgja spurningunni.
Forsögu málsins má rekja til þess að Ljótu hálfvitarnir stigu fyrstir tónlistarmanna það skref að banna Útvarpi Sögu að spila tónlist eftir hljómsveitina vegna rasískrar umræðu á stöðinni og mannhaturs, en Hringbraut sagði fyrst frá því máli. Þá hafði útvarpsstöðin spurt: Treystir þú múslimum?
Bubbi fór að dæmi Ljótu hálfvitanna og bannaði stöðinni að spila tónlist eftir sig. Því svaraði Arnþrúður af hörku og sagði hann ekki geta bannað slíkt sjálfur. Síðan hefur sagan undið upp á sig með þeim hætti sem færsla Bubba í dag er til vitnis um.