Líf Bubba Morthens verður sett á svið í söngleik í Borgarleikhúsinu í vetur og mun bera nafnið Níu líf. Ólafur Egilsson leikstjóri segir um sýninguna í samtali við Síðdegis útvarpið á Rás 2:
„Alls staðar þar sem stærstu breytingarnar verða í íslensku samfélagi þar hefur Bubbi verið. Hvernig maður eins og hann fellur og rís, stendur á tveimur í dag, elskar og er elskaður. Það er leikhúsdramatík par exelans.“
Bubbi Morthens hefur blendnar tilfinningar til verksins, bæði út frá hégóma og hvað gerist. Bubbi segir:
„Hégóminn er harður húsbóndi. Mér finnst þetta forvitnilegt. Mér finnst þetta pínkulítið óhugnanlegt. Mér finnst þetta vera spennandi, bæði út frá hégóma og hvað gerist.“ Bubbi bætir við að hann vilji ekki skipta sér af sýningunni, því þá væri hann líklegur til að taka það út sem léti hann líta illa út. Bubbi segir:
„Frá 15 ára aldri þangað til ég varð fertugur var ég meira eða minna í eiturlyfjaneyslu. Og ég hugsaði þegar ég var orðin þekkt stærð í íslensku samfélagi: Segðu bara allt, þá hefur enginn neitt á þig!“ Bubbi bætir við að hann sé þó spenntur fyrir sýningunni: „Ég hef hringt tvisvar og spurt hvernig gengur. En annars veit ég ekki neitt.“