Bubbi um öll innan­lands­smitin: „Það kemur ekki á ó­vart hvaðan þau koma“

Bubbi Morthens, einn ást­sælasti tón­listar­maður okkar Ís­lendinga, segist ekki hissa á því hvaða innan­lands­smitin eru að koma.

Kórónu­veiru­smitum hér­lendis hefur farið fjölgandi og var met slegið í gær þegar 167 innan­lands­smit greindust.

Aldrei hafa áður greinst svo mörg smit á einum degi frá því að far­aldurinn hófst. Af þeim sem greindust voru 122 utan sótt­kvíar. 108 smitaðra eru bólu­sett.

Bubbi skrifar á face­book að það komi honum lítið á ó­vart hvaðan flest smitin koma: „Verður að segjast það kemur ekki á ó­vart að flest smitin sem eru að greinast koma af djamminu því miður,“ skrifa Bubbi.