Bubbi Morthens skrifar á Facebook síðu sína að við heimili hans sé hraðatakmörkun sem ekki allir virði.
„Ég bý í litlu samfélagi þar sem kyrrð og fegurð er yfir og allt um kring. Þar sem ég bý er vegur þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Margir virða þær takmarkanir en alltof margir virða þær ekki. Ég er með þrjú börn í heimili sem þurfa oft að fara yfir þennan veg en á honum er ein gangbraut en engir gangstígar. Það er því ekki þorandi að leyfa barni að vera á hjóli úti á vegi“, skrifar Bubbi.
Hann segir að í Kjósinni þar sem hann býr sé er hættuleg meðvirkni í gangi.
„Hún er sú að alþekkt er að hér um slóðir aka ákveðnir einstaklingar nánast daglega drukknir um vegina. Í sveitinni tala allir um þetta og segja: Við verðum að gera eitthvað í þessu. Og sumir hafa sagt: Ja, við höfum talað við hann þennan og beðið hann að vera ekki að keyra drukkinn. En það hefur ekki dugað.“
Bubbi vill ekki nefna þessa einstaklinga svo það liggi ekki allir liggi undir grun.
Hann skrifar:
„Á kjördag hitti ég einn slompaðan komandi á bílnum til að kjósa. Og í meðvirkni minni lét ég það ógert að gera eitthvað í málinu. Og svo sat ég heima og bölvaði sjálfum mér fyrir kjarkleysið.“
Hann segist óttast um öryggi konunnar sinnar og barna en viti þó að meðvirkni með alkóhólistum sé það sem leggst á allt fólk, óháð stéttum.
„Við erum meðvirk með börnum okkar, foreldrum, vini sem hefur brotið af sér, og við réttlætum allan andskotann fyrir okkur því það er of sárt að þurfa að spyrna við fótum og segja hingað og ekki lengra.“
Og að lokum þetta:
„Ég skrifa þetta af ást og kærleika og með vinsemd og virðingu fyrir sveitungum mínum“.