Bubbi og Tolli styðja hvor sinn stjórnmálamanninn

Bræðurnir Bubbi og Tolli Morthens styðja sinn hvorn stjórnmálamanninn fyrir Alþingiskosningarnar framundan. Báðir eru samfélagsrýnar og hafa lagt mikið af mörkum til íslensks menningarlífs.

Tolli lýsir ekki yfir beinum stuðningi, en það er ljóst að hann er mjög hrifinn af Ásmundi Einari Daðasyni, oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík.

„Takk Ásmundur fyrir frábært starf í þágu svo margra sem þurfa stuðning til betra lífs í samfélagi okkar,“ segir Tolli og birtir mynd:

Litli bróðir Tolla, Bubbi Morthens ætlar hins vegar að kjósa Guðmund Andra Thorsson, þingmann Samfylkingarinnar:

„Ég mun Kjósa Guðmundur Andri Thorsson það er ekki flókið.“

Guðmundur Andri þakkaði Bubba fyrir stuðninginn.