Bubbi og steinar berg í hár saman!

Sjónvarpsþátturinn Popp- og rokksaga Íslands sem sýndur var á Rúv í gærkvöld hefur vakið væringar milli tónlistarjöfra. Þeir Steinar Berg fyrrum plötuútgefandi og Bubbi Morthens rokkstjarna hafa átt í hörðum deilum í dag vegna ummæla sem féllu í þætti gærkvöldsins.


Steinar Berg segir á eigin facebook-þræði að Bubbi hafi með ummælum sem vitnað var til í sjónvarpsþættinum í gær vegið að mannorði og svert sig með órökstuddum dylgjum. Var þá fjallað um Utangarðsmenn og Egó en Bubbi sagðist 35 árum síðar enn ekki sáttur vegna uppgjöra Steinars. Bubbi bregst við ummælum Steinars og svarar honum á facebook að vegna þekkingarleysis hafi bæði Utangarðsmenn og Egó sem Steinar Berg gaf út skrifað undir arfaslaka samninga sem hafi skilað afar litlu í aðra hönd þrátt fyrir mikla plötusölu og vinsældir. Steinar segir að Bubbi viti ekkert hvað hann sé að tala um. Útgáfustarfsemi Steinars hf hafi hangið á innflutningi en aldrei orðið hagnaður á útgáfu íslenskra hljómsveita. Mesta klúðrið hafi verið innvortis rugl bandsins og Bubbi hafi átt mestan þátt í því.

Jöfrarnir tveir virðast þó skilja í góðu eftir beittar sendingar sem vakið hafa athygli í dag: \"Bubbi, þetta væl þitt er bara kjaftæði,\" segir Steinar Berg. \"Ég fyrirgef þetta ábyrgðarlausa tal veit að þú ert hvatvís og er þakklátur fyrir það góða sem við gerðum saman.\"

Hvað sem líður fjármálakjarna málsins sem eflaust fæst aldrei skorið úr um, myndi einhver segja að Steinar mæli fyrir hönd þjóðarinnar hvað þakklætið varðar. Án samstarfs Bubba og Steinars hefðu Íslendingar e.t.v. misst af nokkrum af dýrmætustu perlum dægurlagasögunnar.