Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens eru komnir í hár saman. Deilurnar hófust eftir að Brynjar tjáði sig á Facebook þar sem hann greindi frá því að honum hefði verið boðið í samkvæmi. Brynjar sagði:
„Á boðstólum var bjór, sem var óþekkt vara á Íslandi þar til ég varð þrítugur – þökk sé íslenskum vinstri mönnum. Ég veit ekki hvernig ég á að lesa í þetta en þegar öllum var boðið besti bjórinn frá Tuborg var mér gefinn íslenskur bjór sem ber nafnið Leiðindaskjóða.“
Bubbi tjáði sig undir þræðinum og sagði:
„Er aukin drykkja þá hægri mönnum að kenna?“
Brynjari svaraði að betri drykkjumenning væri í raun hægri mönnum að þakka.
Bubbi spurði þá: „Eru þá biðlistar á geðdeild og meðferðarstofnun hægri mönnum eða vinstri mönnum að kenna eða guði að kenna, er að spyrja fyrir óvin.“
Brynjar svaraði: „Eru þeir biðlistar bjórnum að kenna, Bubbi? Vitum vitum allavega að drykkja er öðrum en drykkjumanninum að kenna.“
Bubbi sagði þá að aukið aðgengi að fíkniefnum og áfengi myndi auka vandamál.
Brynjar svaraði: „Djö hljóta aðrar þjóðir vera illa farnar, Bubbi. Það er varla að maður þori að fara út fyrir landsteinana.“
Bubbi svaraði Brynjari á þá leið að þingmanninum ætti að vera kunnugt um að allir aðrir en Íslendingar væru spilltir, drykkfelldir djöflamergir þar sem hægri menn arðrændu fólk og greiddi mútur hægri vinstri.
Brynjari hjó þá til baka og sagði Bubba dreifa skít og skattgreiðendur sæju til þess að útvega honum pening til að „glamra á gítarinn sinn.“ En Bubbi er á heiðurslistamannalaunum hjá ríkinu. Orðrétt sagði Brynjar:
„Gott að þú komst arðráninu og auðvaldinu inn í þessa umræðu, Bubbi. Líf þitt er auðvitað miklu einfaldara eftir að skattgreiðendur tóku að sér að greiða þér þokkalega fjárhæð í hverjum mánuði til æviloka. En þú áttar þig ekki á því að auðvaldið skaffar nú þessa peninga að mestu ásamt duglegu fólki sem stritar í sveita síns andlits, meðan þú glamrar á gítarinn áhyggjulaus og dreifir skít.“
Bubbi lét ekki slá sig út af laginu og var þetta lokasvar hans í deilunum þegar þetta er skrifað:
„Þegar menn verða rökþrota þá fara þeir i manninn en ekki boltann enda skilst mér það hafi verið aðalsmerki þitt í fótboltanum, en já aukið aðgengi, meiri neysla. Það er staðreynd sama hversu mikið þið hrópið um frelsi áfengis og ég held að Miðflokksmenn séu skýrt dæmi hvernig bjórdrykkja gera fólk að vitringum og mundu Brynjar fara í boltann.“