Bubbi morthens blæs á frjálshyggjuna

Ég þarf ekki neina vímu, þarf engin efni, vakna aldrei þunnur, þarf aldrei að hafa áhyggjur af því hvort ríkið sé opið eða lokað, þarf aldrei að öskra á börnin á sunnudögum, er alltaf hundraðprósent til staðar fyrir fjölskylduna - og er flott fyrirmynd.

Þetta skrifar tónlistargoðsögnin Bubbi Morthens á fésbók sína í dag og kveðst hissa á frjálshyggjufólki sem telur það helstu merki um frelsi að selja eiturlyf í matvöruverslunum, eins og hann orðar það.

Hann líkir vímunni við handjárn, fólk sem sé sífellt sullandi í hvítvíni, grasi eða hassi viti ekki hversu gott það er að vera ómengað af eitri; að komast í vímu af lífinu sjálfu í stað skaðlegra efna sé nánast trúarleg reynsla.

En hann kveðst auðvitað vera í minnihluta og bendir aukin heldur á að áróður áfengis og eiturs heyrist betur og oftar en varhugurinn sem menn vilji gjalda við ömurlegum afleiðingum af illa fenginni vímu. Alki sem neiti vanda sínum færi öll rök heimsins fyrir því að víman sé vinur hans og valdi honum engum vanda.

 

Raunin sé önnur, segir Bubbi Mortens; þeir sem þurfi að nota vímugjafa 24/7 og haldi að þeir stjórni lífi sínu sé á villigötum, því það sé nú einu sinni svo víman sé bossinn sem ráði öllu.