Bubbi minnist ásgeirs magnúsar: „svo vöknum við með sól að morgni“

Tónlistarmaðurinn og matreiðslumeistarinn Ásgeir Magnús Sæmundsson, betur þekktur sem Geiri Sæm, lést á heimili sínu í Reykjavík þann 15. desember. Ásgeir var 55 ára gamall.

Ásgeir söng, spilaði á gítar og hljómborð og samdi fjölda laga og texta. Þekktustu lögin hans eru Sterinn, Er ást í tunglinu, Rauður bíll og Froðan, en það síðastnefnda kom út í flutningi Geira Sæm og Hungangstungslins árið 1988 og svo aftur í flutningi Ragga Bjarna og Jóns Jónssonar árið 2012.

Síðast gaf Geiri út lag á 55 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, sem nefnist Sooner than later.

Fjölmargir minnast Geira á samfélagsmiðlum. Í þeim hópi eru Bubbi Morthens, Frosti Logason, Jón Ólafsson og Jakob Smári Magnússon.

Bubbi Morthens skrifar:

„Hann var kunningi minn, við áttum samleið svo lengi, falleg manneskja fullur af hæfileikum. Við komum og við förum þannig er Lífið. Farðu í friði vinur minn kær svo vöknum við með sól að morgni samúðarkveðja vina og vandamanna.“

Jakob Smári Magnússon tónlistarmaður segir:

„Nú ert þú farinn frá okkur elsku vinur og eftir situr minningin um góðan dreng og öll tónlistin þín. Hvíldu í friði kæri vinur. Við tökum kaffibollann seinna. Ég sendi Önnu, Sonju, Ásgerði og öðrum aðstandendum mínar dýpstu samúðarkveðjur.“

Frosti Logason annar stjórnandi Harmageddon og tónlistarmaður segir:

\"\"„Elsku Geiri, greindist með krabbamein fyrir nokkrum mánuðum og tapaði orrustunni á sunnudaginn síðasta. Rétt fyrir jól. Ofboðslega sorglegt.

Þessi góði drengur var alveg magnaður músíkant og yndisleg manneskja.

Við vorum svo stoltir strákarnir á Xinu árið 2012 þegar við fengum hann til að dusta rykið af gítarnum og stíga aftur á svið eftir margra ára hlé. Við komum honum í samband við hljómsveitina Kiriyama Family og þeir æfðu saman upp nokkurra laga prógram sem þeir svo spiluðu á tónleikum okkar á Menningarnótt það árið. Öll bestu lögin hans Geira.

Geiri var þvílíkt glaður með þetta og var auðvitað yfir sig hrifin af meðleikurum sínum sem voru eins og hann, allt stórkostlegir tónlistarmenn. Hann hrósaði þeim þvílíkt og var sjálfur hógværðin uppmáluð.

Hvíl í friði elsku Geiri minn og góða ferð til hunangstunglsins.
Ástarkveðjur til fjölskyldu hans og vina“

Eyþór Ingi segir einfaldlega:

„R.I.P.“

Jón Ólafsson tónlistarmaður:

„Geiri Sæm, samferðamaður og kollegi í listinni, er fallinn frá aðeins 55 ára að aldri. Hann hafði barist við krabbamein og laut loks í lægra haldi á sunnudaginn var. Þegar ég rifja upp kynni mín af þessum ljúfa dreng þá er hógværð fyrsta orðið sem mér dettur í hug. Væri honum hrósað þá brást hann við með feimnislegu brosi og þakkaði einlægt fyrir. Geiri vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Pax Vobis og síðar Hunangstunglinu.

Lög eins og Froðan, Rauður bíll og Sterinn eru meðal laga sem náðu miklum vinsældum; hið fyrstnefnda öðlaðist reyndar nýtt líf fyrir nokkrum árum með öðrum flytjendum.

Hann dró sig að mestu út úr sviðsljósinu eftir nokkur gifturík ár í tónlistarbransanum og matreiðslan tók yfir en hann var frábær kokkur og vinsæll sem slíkur. Músíkin togaði þó alltaf í og hann samdi áfram lög og texta og annað veifið heyrði maður frá honum nýtt efni. Geiri var mikill KR-ingur og ég get ímyndað mér að Íslandsmeistaratitill mfl.karla á þessu ári hafi glatt þennan góða dreng verulega.

Við spiluðum nokkrum sinnum saman og milli okkar ríkti gagnkvæm virðing, skilningur og hlýja í garð hvors annars.

Það er mikil eftirsjá af Ásgeiri Magnúsi Sæmundssyni og ég sendi aðstandendum hans og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur.“