Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur undir listamannsnafninu Auður, var harðlega gagnrýndur af Bjarnheiði Hallsdóttur, formanni Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann hefur notið mikill vinsælda undanfarið og hlaut til að mynda átta tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna og vann þar tvö verðlaun fyrir plötu sína Afsakanir. Auður spilaði á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt og sá Bjarnheiður hann flytja eitt af sínum vinsælustu lögum, Freðinn, sem henni þykir hampa vímuástandi. Bjarnheiður sagði:
„Lagið sem ég sá hann syngja heitir „Freðinn“ og er víst hans stærsti „hittari“. Ég tek það fram að ég þekki ekkert til tónlistarmannsins eða hans sögu en það var eitthvað sem argaði innan í mér við að hlusta á textann sem hann söng. Þar er hann sem sagt „freðinn“ eða í dópvímu og túlkunin er þannig að það sé bara mjög eðlilegt ástand að vera í vímu. Fyrir börn, sem ég er viss um að hlusta á þennan tónlistarmann (13 ára sonur minn þekkti hann), gæti þetta virkað sem eftirsóknarvert, skemmtilegt og eðlilegt. Upphafning vímuástands.“
Íslenskir listamenn hafa lýst yfir stuðningi við Auðunn og í þeim hópi er Bubbi Morthens, Ingó H. Geirdal og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason. Hallgrímur segir að Auðunn sé „geggjaður“ og Ingó bætir við: „Það sem kom mér einna mest á óvart er hvað Auður er lunkinn og fær gítarleikari. Eins og reyndar annað söngvaskáld sem hefur áður sungið um að vera freðinn.“
Vísar Ingó þar í lagið Svartur Afgan sem Bubbi Morthens gerði frægt fyrir mörgum árum. Sjálfur segir Bubbi:
„Auður er frábær tónlistarmaður lagið Freðinn er geggjað lag - Engin eins og þú er eitt af lögum ársins. Ég er búinn að heyra þetta allt áður, aftur og aftur í gegnum ferilinn koma manneskjur og kvarta yfir fyrirmyndum unga fólksins með húsin sín full af áfengi og vandlætingu.“