Bubbi í slag við egil helgason

Bubbi Morthens bregst illa við pistli Egils Helgasonar fjölmiðlamanns á Eyjunni. Þar skrifar Egill um viðureign Gunnars Nelson um helgina og er ekki hrifinn af.

Í pistli Egils segir m.a.:

„Stundum er sagt að góð íþrótt sé gulli betri...Það fór svo að Gunnar tapaði. Ósigur hans fólst í því að hann var keyrður niður í gólf, honum haldið og hann laminn viðstöðulaust í hausinn.“

Vitnar svo Egill í frétt á visir.is þar sem segir um andstæðing Gunnars:

„Ef hann var ekki með Gunnar í lás var hann að berja hann sundur og saman. Fyrir þriðju og síðustu lotuna var Maia búinn að landa 114 höfuðhöggum og þau urðu bara fleiri.“

Við skrifum Egils bregst Bubbi Morthens af hörku í athugasemd.

Bubbi spyr hvernig Egill nenni þessu tuði, menn ákveði sjálfir hvað þeir vilji og geri það eftir ströngum reglum. Alvarlegri slys verði í hestaíþróttum en hnefaleikum.

Svo skrifar Bubbi:

„Sumt fólk fer svo ílla með sig vegna ofáts reykinga og drykju bönnum þessu fólki að fara svona með sig þetta kostar þjóðfélagið stór pening fólk sem er of feitt skipum þeim í megrun læsum fólk inni sem drekur óhóflega kærum fólk sem reykir bla bla bla bla lámennig hvað.“