Íhugaði sjálfsvíg eftir skilnaðinn

Bubbi Morthens lýsti því á afar persónulegan hátt í seinni hluta samtals síns og Sigmundar Ernis í Mannamáli á sunnudagskvöld hvað hann fór djúpt niður eftir skilnaðinn við Brynju Gunnarsdóttur, sem hann var kvæntur um langt árabil.

Þáttinn, sem vakið hefur feiknlega athygli,  má nálgast hér á vef stöðvarinnar, en þar lýsir Bubbi því hvað hann var farinn íhuga það alvarlega að taka líf sitt eftir skilnaðinn, en það hafi í raun og sann verið Tolli bróðir hans sem hafi bjargað honum á síðustu stundum og komið honum aftur til manns, ef svo megi segja.

Hann hafi svo getað skrifað sig og ort frá ósköpunum - og Tolli hafi þurft að sitja uppi með hann í fullkominni sjálfsvorkunn þar sem hvert lagið hafi orðið til af öðru á örfáum dögum.

Hann segist á stundum undrast - vera jafnvel hræddur við það - hvað hann geti samið mikið af lögum, eiginlega sé eitthvað komið af stað í hvert einasta sinn sem hann vakni í bítið á morgnana.  

Í þætti sunnudagskvöldsins, sem er framhald af Mannamálsþætttinum þarsíðasta sunnudagskvöld þar sem Bubbi gerði upp æsku sína og fyrstu rokkárin, er fjallað ítarlega um dópárin og svo konurnar í lífi kappans, en hann segist vera mjög sjálfhverfur og það geti varla verið auðvelt að deila heimili með svoleiðis manni.

Báðir Mannamálsþættirnir með Bubbar verða svo endursýndir saman um áramótin.