\"Ég held að almenningur sé alveg til í að láta bankana vita hvað þeim finnst um samtímann, þetta er orðið alveg eins og fyrir hrun,\" segir Bubbi Morthens í samtali við Hringbraut.
Bubbi hvetur til nýrrar Búsáhaldabyltingar í færslu á eigin fésbókarvegg þar sem hann deilir bloggskrifum Stefáns Ólafssonar prófessors um siðlausan bankakrekstur. Bubbi spyr: \"Er ekki komin tími til að öskra, berja potta og spyrja í fúlustu alvöru: Hvað er að gerast?\"
Spurður hvað veki helst vandlætingu fólks nefnir Bubbi Borgunarmálið, Símamálið, fleiri vafasamar eignasölur, bónusgreiðslur ýmissa toppa, miklar launahækkanir stjórnenda, alltof háa vextir útlána og frumskóg þjónustugjalda.
Telur Bubbi þá að ný Búsáhaldabylting sé málið, mun hann hvetja landsmenn til þátttöku í nýjum allsherjarmótmælum?
\"Það er það það eina sem menn skilja. Hér eru allir innviðir fúnir, spítalar fjársveltir, gamalt fólk á reki í ólgusjó, húsnæðiskerfið hrunið, ungt fólk á varla framtíð hér á landi. Á meðan horfum við enn og aftur á þessa geðveiki sem græðgin veldur, að hér eru aftur komnir jakkalakkar sem láta okkur hin borga bónusgreiðslur, dúddar sem voru í gjaldþrota fyrirtækjum komnir með nýja kennitölu og skilaboð þeirra til fólks eru: Fuck you,\" svarar Bubbi.