Bubbi fengið sig fullsaddan af dónaskapnum: „virðing gagnvart skoðunum hvors annars er lykillinn að ást og kærleika“

Kjötætur og grænkerar hafa deilt í dag og hafa deilur þeirra harðnað. Má rekja upphafið til umræðu um mataræði grunnskólabarna. Voru kjötætur ósáttar yfir því að Reykjavíkurborg hygðist skoða að minnka framboð á dýraafurðum í grunnskólum borgarinnar.

Deilur þessara tveggja hópa hafa farið stigvaxandi. Í frétt DV eru birt mörg ummæli grænkera og kjötæta og eru sum vart birtingarhæf. Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens virðist hafa fengið nóg og birtir stuttan pistil á Facebook-síðu sinni.

„Ég borða kjöt, fisk, grænmeti, baka brauð, er með hænur sem borða alla afganga. Er þó að minnka kjötið. Ég skil ekki þetta rifrildi um kjöt og grænmeti. Sennilega tekur tíma að venja fólk og fá það til að hætta eða minnka kjötát. Mikið af vinum og sum börnin mín eru grænkerar. Mér finnst það fínt og þau láta mig í friði þó ég borði steikur stundum, eða lamb. Virðing gagnvart skoðunum hvors annars er lykillinn að ást og kærleika.“