Forysta Alþýðusambands Íslands á von á því að ríkisstjórnin kynni þeim tillögur sínar að þeim skattabreytingum sem stjórnvöld eru reiðubúin að beita sér fyrir til að greiða fyrir lausn yfirstandandi kjaradeilna. Morgunblaðið greinir frá.
Næsti fundur milli VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara er áætlaður á fimmtudaginn. Þar mun ráðast hvort tillögur ríkisstjórnarinnar greiði fyrir áframhaldandi viðræðum eða hvort þeim verður formlega slitið og verkalýðsfélögin fjögur hefji undirbúning að boðun verkfalla.
Samkvæmt heimildum innan verkalýðshreyfingarinnar sem Morgunblaðið vísar til er talið að umtalsverð lækkun skattbyrði tekjulágra launþega með nýju lágtekjuskattsþrepi og krónutöluhækkun af hálfu atvinnurekenda til viðbótar við tilboð Samtaka atvinnulífsins sem lagt var fram á dögunum og var hafnað af verkalýðsfélögunum gæti lagt grunn að samkomulagi um endurnýjun kjarasamninga.