Búast við 25% hækkun íbúðaverðs

Gangi ný þjóðhagsspá Íslandsbanka eftir mun fasteignaverð hækka um fjórðung á næstu tveimur árum, eða út árið 2017, en það merkir að íbúðaverð verður orðið hærra en það var árið 2005.

Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka metur það svo að hér sé ekki fasteignabóla á ferðinni enda sé hækkun studd efnahagslegri þróun og sé þannig í takti við launa- og kaupmáttarþróun, en bankinn spáir rúmlega 5% vexti kaupmáttar á þessu og næsta ári. Ekki sé hægt að greina að hækkun íbúrðaverðs sé drifin áfram af lántökum. Innistæða sé fyrir hækkuninni, en skuldir almennings séu almennt að lækka, bendir Ingólfur á.

Hann segir að allt bendi til að fasteignaverð verði áfram hátt á næstu árum og tvennt ráði þar miklu; uppbygging gistiheimila og hótela sé enn ekki umfram eftirspurn og rétt nái að fylgja eftir vexti ferðaþjónustunnar og þá sé einfaldlega merkilega lítið byggt af íbúðarhúsnæði þar sem skorturinn er einna mestur.