Búa sig undir grískt allsherjarhrun

\"Við erum mörg sem göngum um göturnar með társtokkinn hvarm,\" segir Mahi Papaconstantinou, grísk kona sem gat ekki tekið pening út úr hraðbanka í gær.
 
\"Þetta er eins og stríðsástand án vopna,\" bætir grískur hóteleigandi við til að lýsa andrúmsloftinu í landinu. Hann kveðst vera byrjaður að hamstra mat til þess að halda hótelkeðju sinni gangandi.
 
Innviðir Grikklands eru við það að hrynja. Almenninggur býr sig undir allsherjarhrun eftir að bankakerfinu var lokað í síðustu viku og hraðbankar hættu að virka. Með hverjum degi verður erfiðara að nálgast peningaseðla. Í ljósi þess að flestir nota nú greiðslukort óttast landsmenn að kerfið standi ekki undir slíku álagi og hrynji.
 

Að því er fram kemur á fréttavef RÚV í morgun hefur neysla í landinu minnkað talsvert - og það eukur enn á vandann, enda hægir á framleiðslu í landinu fyrir vikið. Vefurinn segir að í gær hafi þær fregnir spurst út að í apótekum í Aþenu væri skortur á lyfjum. Sífellt fleiri Grikkir tali um að andrúmsloftið í landinu minni um margt á umsátursástand, segir þar samkvæmt ítarlegri grein úr breska Guardian.

\"Efnahagur landsins er deyjandi,\" segir grískur hagfræðingur í þeim virta miðli. Hann óttast að landið stefni í hraðbyri inn í efnahagskreppu. \"Frá öllum hliðum séð er hagkerfið hálf-lamað.\"

Ferðaþjónustan í Grikklandi hefur orðið fyrir miklu höggi. Fjölmörgum ferðum hefur verið aflýst og fáir bóka ferðir inn í landið á síðustu stundu. \"Í fyrra bókuðu um það bil 120 þúsund manns ferðina sína á síðstu stundu. Nú eru það ekki nema 70 þúsund manns,\" segir starfsmaður í ferðaþjónustu.

Um helgina felldu Grikkir samningstilboð lánardrottna landsins. Samningstilboðið var forsenda fyrir því að Grikkir fengju neyðaraðstoð frá Evruríkjunum til að greiða skuldir gríska ríkisins. Leiðtogar Evrópuríkja höfðu margir gert að því skóna að Grikklandi yrði ekki vært í Evrusamstarfinu ef þjóðin hafnaði téðu samningstilboði. Á næstu dögum kemur í ljós hvaða afleiðingar það kemur til með að hafa fyrir Grikkland.