Bsrb mótmælir harðlega hugmyndum um einkavæðingu íslandspósts - „póstþjónusta er samfélagsþjónusta“

Í bréfi sem Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BSRB, sendi Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra segir að engin rök séu fyrir einkavæðingu á póstþjónustu enda eigi hún að vera órjúfanlegur hluti af almannaþjónustunni að mati BSRB. Bandalagið mótmæli harðlega hugmyndum fjármála- og efnahagsráðherra um að einkavæða Íslandspóst.

Bréfið er sent í kjölfar ummæla Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra um að fljótlega kunni að vera tímabært að einkavæða Íslandspóst ohf. Í bréfi BSRB segir Magnús að ljóst sé að einkavæðing þess muni hafa í för með verri þjónustu og aukin kostnað fyrir almenning auk þess að hafa slæm áhrif á réttindi starfsmanna.

„Póstþjónusta er samfélagsþjónusta rétt eins og heilbrigðisþjónustan, löggæsla, samgöngur og fleira. Þar þarf fyrst og fremst að horfa til þess að almenningi um allt land sé tryggð góð þjónusta. Slíkt er ekki hægt nema almannaþjónustan sé í höndum hins opinbera sem skipuleggi, stýri og fjármagni hana með jafnan rétt almennings að leiðarljósi,“ segir meðal annars í bréfi BSRB.

Þar er einnig rakið hvernig einkavæðing póstþjónustu í Evrópu hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt með bættri þjónustu og minni kostnaði. Þvert á móti hafi einkavæðingin víða haft í för með sér verri þjónustu, sér í lagi í dreifbýli, hækkandi gjaldskrár og slæm áhrif á vinnuskilyrði og réttindi starfsfólks. BSRB vill enn fremur hvetja stjórnvöld til þess að hætta við öll áform um frekari einkavæðingu samfélagslegra mikilvægra innviða