\"Það er afar brýnt að talsetja allt efni fyrir börn og texta allt erlent efni nema það mætti gera undanþágu ef þetta eru beinar útsendingar sem skipta verulega miklu máli,\" segir Guðrún Kvaran, formaður íslenskrar málnefndar um það álit fjölmiðlanefndar að gefa þar nokkurn afslátt til a bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla.
Hún segir að nefndin hafi ekki verið fengin til að leggja mat sitt á tillögur fjölmiðlanefndarf, en til þess muni þurfa ef ráðherra kýs að fara þá leið sem hér er lögð til: \"Við höfum ekki fengið þessa skýrslu til umsagnar en þurfi að breyta lögum þá verður þessu vísað til okkar og við höfum ekki rætt þetta en ég get ekki ímyndað mér annað en að viðhorf nefndarinnar verði hin sömu og þau hafa verið til þessa,\" segir hún við ruv.is í dag.
Í skýrslu fjölmiðlanefndarinnar segir að hagsmunaaðilar leggi til að svigrúm verði aukið, þá sérstaklega í myndefnisveitum og beinum útsendingum, líkt og íþróttaútsendingum. Guðrún segir að þetta sé allt of víð skilgreining og það þurfi að afmarka betur undantekningartilvikin sem heimila slíka undanþágu. Íslenskan eigi nú þegar undir högg að sækja. „Íslensk tunga verður fyrir gríðarlega miklu áreiti einmitt núna og hefur verið undir miklum erlendum áhrifum þannig ég held að allt sem ýtir undir erlend áhrif á hinni íslensku tungu sé af hinu illa,“ er haft eftir Guðrúnu á ruv.is.