Brynjar vill verða ráðherra

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þar ræða hann og Björt Ólafsdóttir um stöðuna í stjórnmálunum. Ljóst er að nokkuð ber á milli flokka þeirra, Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Ekki síst í sjávarútvegsmálum.

Brynjar svarar, aðspurður, að verði Sjálfstæðisflokkurinn í næstu ríkisstjórn muni Brynjar sækjast eftir að fá ráðherraembætti.

Björt er ekki eins afdráttarlaus. Segir annað skipta meira máli.

Viðtalið við Björt og Brynjar er á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld þegar klukkan er rétt um 21:30.