Brynjar var ekki sérlega hrifinn af jómfrúarræðu sigríðar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var ekki sammála jómfrúarræðu Sigríðar Maríu Egilsdóttur, varaþingmanns Viðreisnar, sem kallaði eftir því í liðinni viku að stjórnmálamenn myndu sýna meiri auðmýkt og iðrun þegar þeir misstíga sig í starfi.

Ræða Sigríðar vakti miklar athygli en þar las hún yfir þingheimi. Hún kvað sér hljóðs í umræðu um störf þingsins og nefndi í því samhengi nokkur mál sem hafa vakið hneykslan í samfélaginu undanfarið.

Sagði hún að þjóðkjörnir fulltrúar á Íslandi kæmust upp með að keyra því sem nemi 36 sinnum hringinn í kringum landið á kostnað skattgreiðenda, halda þjóðhátíðarfundi sem fara 100 prósent fram úr kostnaðaráætlun og orðið uppvísir að því að brjóta lög við skipun dómara án þess að svo mikið sem biðjast afsökunar

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018180939987/brynjar-var-ekki-serlega-hrifinn-af-jomfruarraedu-sigridar