Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir auglýsingar ASÍ og BSRB vera mögulega tærustu mynd spillingar í dag.
„Spilling hefur verið minna til umræðu í þessari kosningabaráttu en oft áður, sem er svolítið sérstakt. Stærstu samtök launamanna, ASÍ og BSRB, hafa blygðunarlaust ausið fé úr sjóðum félagsmanna til að styðja við pólitíska samherja forystumannanna í kosningabaráttunni. Ég myndi ekki gera athugasemdir við það ef þessi samtök væru einkafyrirtæki úti í bæ eða frjáls félög að berjast fyrir ákveðnum málefnum,“ segir Brynjar á Facebook.
Hann tekur fast til orða:
„Má segja að þessi afskipti séu tærasta mynd spillingar í dag. En það heyrist ekki boffs í Gagnsæi, sem var sérstaklega stofnað til að berjast gegn spillingu. Ástæðan er einföld. Þetta er allt sama fólkið í sömu pólítísku baráttunni.“
Brynjar gagnrýnir að aðrir flokkar láti ekkert í sér heyra:
„Þá hefur ekkert heyrst í Pírötum, Viðreisn og Samfylkingunni sem þykjast á tyllidögum vera sérstakir baráttumenn gegn spillingu. Kannski hentar þess spilling þeim ágætlega.“