Brynjar steinrotaðist í tíu mínútur: „Heldur skýrari í kollinum eftir slysið“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, „steinrotaðist“ þegar hann lenti í slysi á rafskútu nýverið. Brynjar er vanur þessum ferðamáta en hann var á leið frá Valhöll á laugardagskvöldið þegar hann datt við Kringlumýrarbrautina.

„Ég ætla nú að bara, öfugt við marga, taka ábyrgð á þessu sjálfur. Ég ætla ekki að kenna borginni um lélega kanta og ríkinu um eitthvað. Ég bara sit uppi með þessa ábyrgð sjálfur, að fara ekki nógu varlega,“ sagði Brynjar í Bítinu á Bylgjunnií morgun.

Hann datt við gatnamót. „Svo man ég ekki meir.“ Næsta sem hann veit er að lögregla og sjúkraflutningamenn fara með hann upp á spítala. Lá hann kaldur í hátt í tíu mínútur. Hann var sendur heim eftir myndatöku á höfði. Er hann nú með glóðarauga og á erfitt með að reima skóna sína.

„Það var nú haft á því orði eftir þetta að ég sé nú heldur skýrari í kollinum eftir slysið og líti jafn vel betur út,“ sagði hann glettinn.

Hann segist vera kominn í bann á rafskútum.