Brynjar snýr baki við bróður sínum

Brynjar Níelsson þingmaður er ekki sammála bróður sínum, Gústafi Níelssyni, en sá síðarnefndi telur að það eigi að banna börn í Gleðigöngunni. Brynjar segist á móti boðum og bönnum. Hann líkir Gústafi við femínista hvað þetta varðar. Líkt og DV greindi frá í gær þá vill Gústaf banna börnum að fara í Gleðigönguna. „Mér þykja göngur af þessu tagi sprenghlægilegar og ekki við hæfi barna,“ sagði Gústaf.

\"\"„Ég hef enga fordóma gagnvart grömpí gömlum körlum af augljósum ástæðum. En síðan hvenær höfum við viljað banna alla hluti sem ekki eru okkur þóknanlegir, bróðir sæll. Þú ert að verða eins og hver annar femínisti. Vorum við ekki einu sinni að boða að fólk bæri ábyrgð á sjálfu sér og sínum börnum?,“ spyr Brynjar.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/08/10/brynjar-snyr-baki-vid-brodur-sinum-thu-ert-ad-verda-eins-og-hver-annar-feministi/