Brynjar segir vegið að störfum lög­reglu í blaðamannamálinu

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður Dóms­mála­ráð­herra, segir í Sprengi­sandi á Bylgjunni í dag að vegið hafi verið að störfum lög­reglu í máli blaða­mannanna fjögurra sem boðaðir voru í skýrslu­töku með réttar­stöðu sak­bornings.

Sam­kvæmt Brynjari hefur um­ræðan verið á rangan veg vegna málsins og heldur því fram að aðilar að málinu skilji ekki hvernig lög­reglu­mál gangi fyrir sig. Hann segir eðli­legt að lög­regla gefi ekki upp allar upp­lýsingar um meint af­brot svo snemma í rann­sókn.

„Þetta eru bara leik­reglur við rann­sóknir mála,“ segir Brynjar um hvers vegna blaða­mennirnir fjórir hafa fengið réttar­stöðu sak­bornings „Svo allt í einu þegar kemur að ein­hverjum fjöl­miðla­mönnum þá er allt komið á annan enda í sam­fé­laginu, ég skil það ekki.“

Með Brynjari var Jón Trausti Reynis­son annar rit­stjóri Stundarinnar. Hann segir Brynjar og flokks­fé­laga hans ekki vera að taka til­lit til stærra sam­hengis í málinu.

Jón segir ó­við­eig­andi að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæðis­flokksins og fjár­mála­ráð­herra, skuli taka af­stöðu í málinu. Þá svarar Brynjar að hann sé ekki að taka af­stöðu. „Hann er bara að reyna að kenna ykkur og segja ykkur til hvernig þessi mál ganga fyrir sig,“ segir Brynjar.

Þá er Kristjáni Kristjáns­syni þáttar­stjórnanda Sprengi­sands ekki skemmt. „Ekki tala svona niður til okkar,“ segir Kristján. „Ekki gera það.“

Hægt er að hlusta á samtalið í heild sinni á vefsíðu Bylgjunnar.