Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður, er nú líka orðinn forseti Bridgesambands Íslands. Frá þessu greinir hann í færslu á Facebook.
„Ég gleymdi að segja ykkur, kæru fésbókarvinir, að ég hef verið kjörinn forseti BSÍ, sem er ekki umferðamiðstöð heldur Briddssamband Íslands. Enn sem komið er hafa engin mótmæli komið fram vegna kjörsins og veit ekki til þess að hafin sé undirskriftasöfnun í þeim tilgangi. Nú er Soffía orðin forsetafrú, eða First Lady, eins og hún er kölluð í útlöndum.“ skrifar Brynjar.
Hann fer þá í að fara fögrum orðum um bridge, sem hann segir að gerir lífið betra. Brynjar fullyrðir meira að segja að um sé að ræða þjóðaríþrótt Íslendinga.
„Ég get sagt við ykkur, kæru vinir, að bridds gerir lífið betra. Það fullnægir félagsþörf okkar og seinkar elliglöpum svo um munar. Það geta allir lært spilið en það þarf að hafa fyrir því að vera á heimsmælikvarða. Við höfum náð því að vera heimsmeistarar og norðurlandameistarar og því verið í fremstu röð í langan tíma. Ég vil því segja við Gaupa, vin minn, að bridds er þjóðaríþróttin, en ekki handbolti.
Árangur okkar í bridds hefur vakið athygli um allan heim og verið mikil auglýsing fyrir land og þjóð. Við ætlum að gera enn betur á næstu árum.“