Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekki að ríkið komi nálægt því að styrkja rekstur Bíó Paradísar frekar. Þannig má túlka nýjustu færslu hans á Facebook þar sem hann kallar fólkið sem vill að ríkið komi að því að bjarga kvikmyndahúsinu „freka kallinn“, sem tilheyri elítuhópi og vilji að skattgreiðendur fjármagni almenna skemmtun hans.
Hann tengir þá sem að ríkið styrki Bíó Paradís við þá sem finnst „ekkert tiltökumál að gefa hátt í milljarð af skattfé vegna gamalla sakamála“ og á þá við þær 774 milljónir sem voru greiddar úr ríkissjóði á miðvikudag til þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í Hæstarétti í september 2018 og til maka og barna þeirra tveggja sem látnir eru.
Hér má sjá færslu Brynjars í heild sinni:
„Kom sterkur inn Freki Karlinn, sem er greinilega ekki kynbundið fyrirbæri, þegar \"auðvaldið\" vildi ekki lengur leigja Bíó Paradís langt undir markaðsverði. Þegar ekki var hægt að beygja auðvaldið vildi Freki karlinn, sem virðist helst tilheyra einhverjum elítuhópum, ekki síst fræðasamfélaginu, að skattgreiðendur fjármögnuðu þessa skemmtun hans.
Þeim sem finnst ekkert tiltökumál að gefa hátt í milljarð af skattfé vegna gamalla sakamála munar auðvitað ekkert um það að niðurgreiða bíómiða fyrir Freka karlinn. Við getum svo notað afganginn, ef einhver verður, til að greiða afkomendum Agnesar og Friðriks, sem fengu örugglega ekki réttláta málsmeðferð.“