Brynjar segir kára blekkja þjóðina

\"Ég hef fengið þó nokkuð af skömmum vegna gagnrýni minnar á undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar og því jafnvel haldið fram að ég ráðist gegn fólkinu í landinu.\"

Þetta skrifar þingmaðurinn Brynjar Níelsson á fésbók sína í tilefni af jötunmóð Kára Stefánssonar, en sjálfstæðisþingmanninum er ekkert sérlega skemmt yfir ráðslagi læknisins og forstjórans: \"Ég ætlast til þess, þegar farið er með kröfur á hendur löggjafanum í undirskriftasöfnun, að almenningur sé ekki blekktur til fylgilags með röngum fullyrðingum og hálfsannleik,\" skrifar Brynjar og segir Kára fara beinlínis með rangfærslur: \"Sitt sýnist hverjum um gæði heilbrigðiskerfisins en það er beinlínis rangt að við séum eftirbátar annarra þegar kemur að framlögum til heilbrigðismála.\"

Hann segir að auðvitað vilji allir bæta heilbrigðiskerfið, en tugmilljarða stjórnlaus innspýting fjámuna sé ekki alltaf lausnin eins og dæmin sanni annars staðar: \"Ég ætlast einnig til þess að upplýst sé í undirskriftasöfnun sem þessari hvað svona kröfur þýða í fjárhæðum og hvaðan þeir fjármunir eigi að koma.,\" skrifar þingmaðurinn og heldur giska fast á penna. 

En hann passar sig: \"Með gagnrýni minni er ég ekki að ráðast gegn fólkinu í landinu. Mér þykir almennt vænt um fólk og eru Íslendingar mér sérstaklega kærir,\" skrifar hann blíður, en hvessir þó að lokum brún: \"Mér gengur ekkert annað til með gagnrýni minni en að gæta hagsmuna almennings. Skoðanir mínar ráðast ekki af því hvernig vindar blása hverju sinni og geðslag mitt gefur mjög takmarkað svigrúm til lýðskrums,\" og hann er vongóður um að þjóðin skilji sína líka: \"Svo kemur oftar en ekki í ljós síðar að meirihlutaskoðunin er önnur en þeir háværustu halda,\" skrifar Brynjar Níelsson á fésbók sína.