Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Sonju Þorbergsdóttur, formann BSRB, og fleiri vera að rugla í almenningi með því að tala um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.
Sonja segir að ný skoðanakönnun BSRB og Rúnars Vilhjálmssonar prófessors sýnir að ekki verði um villst að mikill meirihluti landsmanna vilji heilbrigðiskerfi sem rekið er af hinu opinbera fyrir skattfé okkar allra og hafnar aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.
„Vinstri mennirnir sem stjórna BSRB eru reglulega að kynna okkur eigin kannanir um að landsmenn vilji ekki einkavæða heilbrigðisþjónustu, eins og það er orðað í tilkynningum þaðan,“ segir Brynjar á Facebook. „Hér er auðvitað verið að rugla almenning enda er engin og hefur ekki verið nein einkavæðing í gangi. Það geta allir boðið fram heilbrigðisþjónustu sem uppfylla skilyrði laga. Eðlilegt er því að sjúkratryggingar semji við slíka aðila ef í boði er sambærileg eða betri þjónusta fyrir sama pening og kostar í ríkisrekstrinum.“
Brynjar segir að frá örófi hafi verið bæði einkarekstur og ríkisrekstur í heilbrigðisþjónustu. „Það skiptir engu fyrir sjúkratryggða landsmenn hvort þjónustan er á vegum ríkisins eða einkaaðila, heldur hvað við fáum góða þjónustu fyrir skattpeningana. Ríkisrekstur, hvorki í heilbrigðisþjónustu né öðru, hefur verið hagkvæmur þótt hann sé réttlætanlegur í einstaka tilvikum. Það verður engin nýsköpun eða framþróun ef við vinnum öll hjá hinu opinbera og við verðum undir á endanum. Þetta vita allir.“