Brynjar Níelsson lögmaður og þingmaður gefur lítið fyrir rökin á bak við boðaðan mótmælafund fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur í gærdag.
Rekja má mótmælin m.a. til umdeildra sýknudóma í kynferðisbrotamálum.
Í færslu á eigin fésbók sakar þingmaðurinn Brynjar Níelsson aðstandendur mótmælanna um „ótrúlegt ofstæki“. Hann vitnar í auglýsingu frá hópnum. „Ef dómstólar neita að bæta ráð sitt krefjumst við afsagnar dómara landsins og fullkominnar endurnýjunar í kerfinu. Lögin eru ekki vandamálið. Dómararnir og kerfið sjálft eru vandamálið.“
Um þetta hefur þingmaðurinn eftirfarandi að segja:
„Þetta er krafa hóps sem kennir sig við mannréttindi og réttlæti. Eitt er að gagnrýna einstaka dóma en kröfur af þessu tagi sýna ótrúlegt ofstæki sem þrífst í íslensku samfélagi nú um stundir..“
Hann sneiðir einnig að samráðherra í ríkisstjórn – eða ekki:
„Og til að bæta gráu ofan á svart telur ráðherra jafnréttismála rétt að takamarka tjáningarfrelsið og stærsti stjórnandstöðuflokkurinn vill skikka frjálsa fjölmiðla til að tala jafnt við alla, í þeim tilgangi að auka jafnrétti. Ég fer nú að halda að þeir í Austur Þýskalandi hafi verið í tiltölulega góðum málum á sínum tíma. Vinir mínir í Siðmennt eru nú ekki eins galnir og sumir þessara \"kvenréttindahópa\" sem trúa sjálfir að þeir séu í jafnréttisbaráttu.“