Brynjar og svandís meðal gesta

Áður hefur komið fram að Gunnar Bragi Sveinsson verður gestur í sunnudagsþætti Hringbrautar. Auk hans koma einnig Brynjar Níelsson og Svandís Svavarsdóttir.

Þá er ljóst að þingmennirnir og knattspyrnuáhugamennirnir Vilhjálmur Bjarnason og Willum Þór Þórsson koma og síðar í dag skýrist hvaða gestir aðrir verða í þættinum

Sigurjón M. Egilsson stýrir umræðum.

Sunnudagsþátturinn verður á dagskrá sjónvarps og útvarps Hringbrautar, allt í beinni útsendingu.