Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að hann elski Birgittu Jónsdóttur þingmann Pírata. Ekki er vitað hvernig eiginkona Brynjars tekur þessum ummælum en þingmaðurinn hefur vit á að slá varnagla.
Brynjar reit færslu á eigin fésbók fyrir stundu þar sem hann veltir fyrir sér þeim ummælum Birgittu Jónsdóttur að tvö stóru mál þeirra fyrir næstu kosningar séu að kjósa um áframhaldandi aðildarumsókn að ESB og stjórnarskrá stjórnlagaráðsins sáluga.
\"Ekki einn einasti kjósandi sem ég hef hitt undanfarið hefur þó minnst á þessi tvö stóru mál, ekki einu sinni unga fólkið sem ég hitti helst á öldurhúsum bæjarins,\" skrifar Brynjar léttur.
Hann heldur áfram gagnrýninni áður en blíðuhótin streyma fram:
\"Nú er það svo að varla nokkur maður telur brýnt að halda áfram aðildarferli í samband sem stendur á brauðfótum og virðist vera að molna innan frá. Þau atriði sem almenningur telur brýnt að bæta í stjórnarskrá, ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu og auðlindaákvæði, er klárt í þverpólitískri stjórnarskrárnefnd, þótt ég þykist vita að sumir innan Pírata vilji splundra starfi nefndarinnar og eyðileggja þá samstöðu sem þar hefur náðst.\"
Að þessu sögðu tekur Brynjar sérstaklega fram: \"Að lokum vil ég taka það sérstaklega fram að ég er í hópi þeirra sem elska Birgittu Jónsdóttur.\"
Brynjar níelsson elskar birgittu
Fleiri fréttir
Nýjast